Beint í leiðarkerfi vefsins eða leitarvél vefsins.
1 bolli kjúklingabaunir
1 msk ólífuolía
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
2 msk tahini
¼ bolli sítrónusafi
¼ bolli appelsínusafi
1 tsk paprika
Sjávarsalt
Cayennepipar
Mauka allt í matvinnsluvél og smakka til með salti og pipar. Geymist í lofttæmdum umbúðum í ca viku.
1 lítil ferna soyjarjómi
2 msk agavesíróp
175 gr 70% súkkulaði
Suðan látin koma upp á soyjarjóma og sírópi, hellt yfir saxað súkkulaði, hrært, kælt að hálfu leyti og smurt á kexið eða kökuna eða hvað sem hugurinn girnist.
Þetta er basic uppskrift sem hægt er að leika sér að vinstri
hægri, pizza, píta, formbrauð, smella á grillið eða jafnvel
pönnusteikja með fullt af sjávarsalti, þá ertu komin með Naan brauð.
300 gr spelt
3 msk ólífuolía
1 msk vínsteinslyftiduft
1 tsk sjávarsalt
2 dl vatn
Hræra saman þurrefnum bæta blautefnum út í og blanda varlega
saman eins stutt og hægt er. Mér finnst best að hræra þetta í höndunum
því það hefur tilhneigingu að yfirvinnast í vél og þá verður það
þungt, seigt og illmeðfærilegt.
Það má líka setja ab mjólk í staðinn fyrir olíu og vatn. Ef
þú gerir brauðhleif er gott að auka vatnsmagnið, bæta í 2 msk af
vínsteinslyftidufti og setja allskonar fræ og eins er gott að setja þurrkaðar kryddjurtir ef maður gerir pizzabotn.
Speltblöð
Rifinn mozzarella ostur
1 rauð paprika í sneiðum
1 græn paprika í sneiðum
4 stilkar seller í litlum bitum
2 gulrætur, rifnar
1 bolli puy baunir, soðnar
SÓSA:
1 msk kókosolía eða sólblómaolía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður
2 krukkur tómatar
½ dl appelsínuþykkni
1 tsk basil
1 tsk oregano
Sjávarsalt og pipar
Laukur og hvítlaukur léttsteiktur í olíu, vökva bætt útí og kryddi, smakkað til með sjávarsalti og pipar, grænmeti, baunum og sósu blandað saman, setja í ofnfast mót, sósumat á botninn í miðju og efst, 2 lög af speltplötum og ostur ofaná, bakað í ca 25 mín við 180°C.
½ blómkálshaus
2 gulrætur
4 stórir sveppir
1 lítill púrrulaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 appelsínugul paprika
2 msk sólblómaolía
sjávarsalt
Sósa:
1 msk kókos eða sólblómaolía
1 köggull engifer, saxað
1 geiri hvítlaukur, saxaður
1 dós kókosmjólk
2 tsk paprika
2 tsk timian
Rifinn mozzarellaostur
Grænmetið skorið í bita og bakað í ofni með olíu og smá sjávarsalti, engifer og hvítlaukur léttsteikt í olíunni, kókosmjólk og kryddi blandað í, sósu blandað saman við grænmeti og sett í ofnfast mót, osti stráð yfir, bakað í ca 25 mín við 180°C.
150 g kartöflumjöl
150 g hrísgrjónamjöl
50 g bókhveiti
100 g maísmjöl
45 g sojamjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
¾ tsk himalayasalt eða sjávarsalt
1 tsk agavesýróp
1 msk kókos eða ólífuolía
125 ml kókosvatn
125 ml heitt vatn
2 msk sítrónusafi
Setjið þurrefnin í hrærivélaskál ásamt kókosolíunni og hrærið vel saman. Bætið restinni af uppskrifinni útí og látið hnoðast saman.
Setjið brauðið í smurt brauðform eða mótið hleif og setjið á bökunarpappír í eldhússkúffu. Bakið við 180C í 45-50 mín eða þar til fullbakað.
Stingið prjóni í brauðið og þegar ekkert deig festist við hann lengur þá er þetta tilbúið. Vefjið utan um brauðið viskustykki og leyfið að kólna algjörlega áður en þið skerið það. Frábært að skera í þunnar sneiðar og setja í brauðristina. Gott að nota ískúluskeið og setja í muffinsform - Baka í um 30 - 35 min við 180 C
1 bolli frosin skógarberjablanda
1/2 banani
1 skammtur NOW jarðaberjaprótein
2 msk NOW Acai safi
klakar
vatn
1/2 Banani
1 lítið epli
kanill á hnífsoddi
2 msk Goji safi
klakar
vatn
1 skammtur NOW vanilluprótein
1 Banani
Klakar
vatna
1 msk vanillusykur
1 skammtur NOW súkkulaðiprótein
3 msk Himnesk hollusta kókosolía
1 krukka Himnesk Hollusta kjúklingabaunir
(Eða 1 bolli soðnum kjúklingabaunum frá Himneskri Hollustu)
½ krukka GEO lífræn Thai Satay paste
1 laukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
Lífræn kókosolía sem er sérstaklega hentug til
steikingar
1. Laukur og paprika skorinn og mýktur í olíu og bæta baunum við.
2. Látið malla í 10 mínútur.
Gott með salati og ef til vill hrísgrjónum.
1 msk kókóshnetuolía frá Himneskri Hollustu
2 tsk Herbaria Litir Jaipur
1 tsk sinnepsfræ (má sleppa)
1 tsk Herbaria milt karrý
1 ½ tsk Clearspring sjávarsalt
8 bollar vatn (um 2 lítrar)
2 bollar Bode Naturkost rauðar linsubaunir
2 ½ msk sítrónusafi
1 tsk agave sýróp frá Himneskri Hollustu
1. Hita kókósolíu í stórum potti.
2. Setja allt krydd út í (einnig salt) og láta aðeins krauma þar til sinnepsfræin “poppa”.
3. Bæta vatninu í og láta sjóða.
4. Linsubaunirnar settar í sjóðandi vatnið (blönduna) ásamt sítrónusafa og agave sýrópinu.
5. Súpan soðin í 1 klst við lágan hita og oft hrært í !
2 bollar Bode Naturkost Aduki baunir
1 bolli smásöxuð rauð paprika
1 bolli smásöxuð græn paprika
1 bolli smásaxaður rauðlaukur
½ - 1 krukka Geo mango chutney
1. Sjóðið baunir skv. leiðbeiningum.
2. Þegar baunirnar eru soðnar, hellið vatninu af og bætið paprikunni og lauknum við.
3. Hrærið mango chutney útí baunirnar, 1/2 til 1 krukka, eftir smekk.
Gott með salati og Bode Naturkost hýðishrísgrjónum
Aduki baunir:
Leggja í bleyti 6 – 12 tíma
Suðutími 30 – 45 mín
Ef ekki lagt í bleyti þá suðutími 2 klst.